16.8.2011 | 14:06
Sumarfrí
Jæja þá er maður loksins komin í sumarfrí....
Það hefur lítið verið farið í útilegur en við hjónin fórum samt yfir Kjöl á leið okkar til Keflavíkur að ná í Silju á flugvöllin en hún var að koma heim frá Ameríku. Fyrst var gist í húsagarði á Selfossi og farið í götugrill og sléttusöng á bærjarhátíð þeirra Selfyssinga. Þeir hafa sléttusöng því þar er engin brekka...
nema tvær og þær eru manngerðar...
Síðan var brunað í Kef með viðkomu við Kleifarvatn og Grindavík. Síðan var tjaldað innanum útlendinga á tjaldstæði í Kef sem voru annað hvort að fara í flug eða koma úr flugi...
við vorum allavega einu íslendingarnir þarna. Eftir að heim var komið var haldið áfram að dúlla við húsið...ekki dugir að slá slöku við þó svo að við séum flutt inn...
Núna er ég ein í fríi og held áfram að dúlla eitthvað og skrepp í hjóltúra og slappa náttúrulega af...enda í sumarfríi...
Hvað hafið þið Bótarar verið að gera í sumar...??? Farð í útilegur...til útlanda...í heimsóknir til vina...nú eða vandamanna... ???
Hef þetta gott í bili... 
kv. ihs Bót
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2011 | 12:15
Hvað er að frétta...???
Sælinú...
Það er rífandi gangur í þessu öllu saman...menn og konur, þó aðallega við systur erum hrikalega dugleg að blogga á Bótarablogginu.
Var að vonast til þess að þetta væri orðið okkar einkablogg...sko okkar systra en þetta er að verða mitt einkablogg...hahaha Kannski ég fari að nota þetta sem dagbók...
Kæra dagbók...það er sól í dag og pínu kalt, ég hjólaði samt í vinnuna...en á eftir að hjóla heim...
Það er nammidagur í vinnunni lakrís og súkkulaði...mmm verst að geta ekki gefið systrum mínum með mér...
ég gef þeim bara nammi seinna. Það er föstudagur og helgin alveg að detta á...þá verður afslöppun...
Góða helgi... ihs Bót 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.1.2011 | 22:11
Bóndadagurinn...
Þá er bóndadagurinn næstum liðinn. Mínir strákar, eiginmaður og synir, fengu gjafir í dag og kjötsúpu í kvöldmatinn...það er ekki mikið eftir af súpunni...
Það var ausið á diska, helt í glös, kysst á kinn allt gert fyrir mína menn...
Það er svona að búa ein með þremur mönnum. En þeir eru mér allt...stelpan í USA og var ekki með á þessum degi. Hvað ætli hún fái á konudaginn...nú...eða ég...
Það verður gaman að vita...
Hún hefur það gott í Ameríkunni...fór á bretti í Colorado um síðustu helgi...og í kapp við einhverja drengi niður brekkurnar...þeir höbbðu nú ekki mikla trú á þessari stelpu...að hún gæti rennt sér svona hratt....hahaha Hlynur er duglegur að hjálpa til í B39 en er búinn að vera veikur síðustu viku og Pálmi er búinn að vera í prófum í MA...
Við gemlingarnir erum bara eins og höfum gaman af þessu öllu saman...
Kv. ihs Bót... 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.1.2011 | 01:31
Gleðilegt ár Bótarar nær og fær... ;O)
Kæru Bótarar nær og fær...
Gleðilegt ár og takk fyrir gamla...
Það var var lítið bloggað á síðasta ári en vonandi verður bloggað meira á þessu ári...
Allavega við systur... 
Kær áramóta kveðja, ihs Bót
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.11.2010 | 12:27
Aggi (bróðir) 80 og 80
Aggi er áttatíu ára í dag, þegar ég hitti hann fyrir stuttu og hann var að setja upp í sig eina og eina kleinu (með transfitu) þá sagðist hann hafa ákveðið markmið þann 14. nóv það væri að vera 80 í tvennum skilningi. Ég vona að hann hafi náð þessu markmiði.
Kæri Aggi til hamingju með daginn, ég treysti mér ekki í snjóinn en er með þér í anda, kv. Harpa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.10.2010 | 23:36
In Memorian
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.8.2010 | 12:56
Gumbo og Ljósanótt!
Já, einmitt! Þetta er þá tilkynning til þessara tveggja sem kíkja af og til á bloggið...
Ykkur er boðið í Gumbó á Ljósanótt sem verður 4. september.
sjáumst þá
kv. Kikka
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.7.2010 | 11:25
Sælinú...
Sælir kæru Bótarar....
Það er rífandi gangur á Bótarablogginu...hér ræða menn og konur hin ýmsu málefni líðandi stundar...
Það sem er nýjast að frétta af mér er að ég seldi húsið mitt sem ég hef átt heima í 20 ár...flutti í þriggja herbergja íbúð með fjölskylduna. Það er frekar lítið pláss miðað við einbýlishús...en þetta hefst allt saman. Eftir einhverja mánuði flyt ég aftur í einbýlishús...ef ég verð ekki komin á klepp áður... 
Silja prinsessan á heimilinu er komin og farin...er núna í San Fransisco að vinna sem au-pair og ætlar að vera þar í eitt ár...alltaf verið draumurinn hjá henni að búa í Ameríkuhreppi...
Þann 23.júli næstkomandi ætlum við að hittast sistkynin úr Langholti 15 ásamt mökum, börnum, tengdabörnum og barnabörnum...það verður mikið fjör og mikið gaman...
Hef þetta ekki lengra í þetta skiptið...
Kv. ihs Bót... 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.3.2010 | 09:39
gleymdi okkur...........................
Halló kæru Bótarar, hef ekki litið hérna inn lengi. Var einfaldlega búin að gleyma Bótarablogginu. Vonandi eru allir hressir og kátir og hlakka til páskanna. Alltaf gott að fá páskafrí.
kv. Harpa Bót
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)



